Um íslenskt timbur
Verkefnið Íslenskt timbur
Skógar Íslands hafa vaxið og dafnað og gefa okkur einstakt tækifæri til að nýta innlent timbur í mannvirkjagerð. Með því að velja íslenskt timbur stuðlum við að lægra kolefnisspori og eflum hringrásarhagkerfið. Notkun innlends efniviðs í hönnun og framleiðslu mannvirkja styrkir hagvöxt og skapar ný störf á Íslandi.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka notkun og nýtingu á íslensku timbri í mannvirkjagerð með því að bæta aðgengi að upplýsingum og auðvelda notkun þess í hönnunarferlum.
Verkefnið er styrkt af Ask - Mannvirkjarannsóknarsjóð 2024
Við viljum heyra í þér
Hafðu samband við okkur ef þú hefur spurningar, ábendingar eða vilt ræða eitthvað sem snertir íslenskt timbur.
Netfang: hlynur@haxark.is
Sími: +354 690 0399
Eða fylltu út formið hér fyrir neðan – við svörum þér fljótt!